Adam áfram á góðri siglingu – Fyrsta tap Blæs
Sævar Jónasson

Tveir Íslendingar voru í eldlínunni í 2. Bundesligunni í Þýskalandi í dag þegar 5. umferð deildarinnar hélt áfram. Adam Thorstensen fagnaði sigri með Lübeck-Schwartau en Blær Hinriksson og félagar í Leipzig töpuðu sínum fyrstu stigum á tímabilinu.

Lübeck-Schwartau vann góðan fjögurra marka útisigur á Emsdetten, 33–29, eftir jafnan leik lengst af. Gestirnir leiddu 14–13 í hálfleik en náðu að slíta sig frá Emsdetten á lokakaflanum.

Adam Thorstensen var í leikmannahópi Lübeck-Schwartau en kom lítið við sögu í leiknum. Paul Holzhacker fór mikinn fyrir Lübeck og skoraði ellefu mörk en Lukas Emdorf kom næstur með sex mörk. Markvörðurinn Mark Ferjan varði tólf skot.

Lübeck-Schwartau hefur farið mjög vel af stað og er nú með átta stig eftir fyrstu fimm leiki sína, fjóra sigra og eitt tap.

Öllu verr gekk hjá Blæ Hinrikssyni og félögum í Leipzig sem töpuðu óvænt á heimavelli gegn Dormagen, 27–26. Þetta var fyrsta tap Leipzig á tímabilinu eftir fjóra sigra í fyrstu fjórum leikjunum.

Dormagen var 14–13 yfir í hálfleik og komst í 19–16 í síðari hálfleik. Leipzig svaraði með fimm mörkum í röð og komst í 21–20. Heimamenn voru síðan 26–25 yfir undir lokin en Dormagen skoraði síðustu tvö mörkin. Moritz Köster tryggði gestunum sigurinn, 27–26, þegar aðeins nokkrar sekúndur voru eftir.

Blær var í leikmannahópi Leipzig en komst ekki á blað í leiknum en hann átti eina skot tilraun sem geigaði. Lukas Binder var markahæstur Leipzig með sjö mörk. Christian Ole Simonsen átti stóran þátt í sigri Dormagen og varði 14 skot.

Leipzig hafði unnið fyrstu fjóra leiki sína en fyrsta tapið þýðir að liðið er með átta stig eftir fimm umferðir.

Úrslit dagsins:

Leipzig – Dormagen 26–27
Emsdetten – Lübeck-Schwartau 29–33
Essen - Lübbecke 28-32
Eintracht Hagen - Ferndorf 25-22

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top