HK braut ísinn í spennutrylli í Garðabæ
Sævar Jónasson

HK vann sinn fyrsta sigur á tímabilinu þegar liðið lagði Stjörnuna að velli, 21–20, í fimmtu umferð Olís-deildar kvenna í Garðabæ í kvöld. Inga Fanney Hauksdóttir skoraði sigurmarkið þegar rúm mínúta var til leiksloka.

Jafnræði var með liðunum í fyrri hálfleik og staðan jöfn í leikhléi, 10–10. HK komst tveimur mörkum yfir í síðari hálfleik, 16–14, en Stjarnan svaraði með þremur mörkum í röð og náði forystunni.

Æsispennandi lokakafli tók við þar sem Stjarnan komst ítrekað marki yfir en HK jafnaði jafnharðan. Þórhildur Braga Þórðardóttir jafnaði í 20–20 áður en Inga Fanney skoraði sigurmarkið. Danijela Björnsdóttir varði síðan skot þegar 14 sekúndur voru eftir og HK fagnaði tveimur kærkomnum stigum.

Markverðir beggja liða voru bestu leikmenn vallarins. Danijela varði 16 skot í marki HK en Sara Winde varði 12 skot fyrir Stjörnuna.

Tinna Ósk Gunnarsdóttir var markahæst hjá HK með fimm mörk. Amelía Laufey G. Miljevic, Hekla Sóley Halldórsdóttir og Valgerður Ýr Þorsteinsdóttir skoruðu þrjú mörk hver. Hjá Stjörnunni voru Inga Maria Roysdóttirog Sara Rún Gísladóttir markahæstar með sex mörk hvor.

HK er eftir sigurinn með tvö stig, líkt og Stjarnan og Selfoss, en KA/Þór er eitt liða án stiga eftir fimm umferðir.

Sage By Saga Sif styður kvennaumfjöllun Handkastsins - Kóðinn: handkastid veitir 15% afslátt í vefverslun Sage By Saga Sif.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top