ÍBV fyrsta liðið til að vinna ÍR á tímabilinu
Egill Bjarni Friðjónsson

ÍBV vann fjögurra marka útisigur á ÍR, 30–26, í Olís-deild kvenna í dag og varð þar með fyrsta liðið til að leggja ÍR að velli á tímabilinu. Cornelia Hermansson lék sinn fyrsta leik fyrir ÍBV og átti mikilvæga innkomu á lokakaflanum, þar sem hún varði meðal annars tvö vítaköst.

ÍR byrjaði betur og komst í 5–2 og síðar 9–6. Eyjakonur svöruðu hins vegar með sex mörkum í röð og breyttu stöðunni í 12–9 sér í vil. ÍBV hafði tveggja marka forskot í hálfleik, 14–12.

Heimakonur unnu sig aftur inn í leikinn í síðari hálfleik, jöfnuðu í 20–20 og komust síðan yfir, 21–20. ÍBV svaraði með þremur mörkum í röð og hélt forystunni það sem eftir lifði leiks.

ÍR var sjálfu sér verst á lokakaflanum. Liðið misnotaði tvö vítaköst og tókst ekki að skora í tómt mark ÍBV af stuttu færi þegar um þrjár mínútur voru eftir. Cornelia kom inn undir lok leiks og varði fjögur skot, þar af vítaköstin tvö.

Sandra Erlingsdóttir var markahæst hjá ÍBV með níu mörk og Andrea Jacobsen skoraði sjö. Ásdís Halla Hjarðar og Birna Berg Haraldsdóttir bættu við fjórum mörkum hvor.

Hjá ÍR voru Anna María Aðalsteinsdóttir, Matthildur Lilja Jónsdóttir og Sylvía Sigríður Jónsdóttir markahæstar með fimm mörk hver. Sara Dögg Hjaltadóttir skoraði fjögur.

ÍBV er þar með komið með sex stig og jafna ÍR að stigum.

Sage By Saga Sif styður kvennaumfjöllun Handkastsins - Kóðinn: handkastid veitir 15% afslátt í vefverslun Sage By Saga Sif.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top