Veittist að þjálfara Stjörnunnar og hafði hótanir í garð hans
Sævar Jónasson

Handknattleiksdeild Stjörnunnar sendi í kvöld frá sér yfirlýsingu vegna atviks sem kom upp eftir leik Harðar 2 og Stjörnunnar 2 í 3. flokki karla í gærkvöldi en leikurinn fór fram á Ísafirði.

Hörður 2 vann leik liðanna nokkuð sannfærandi.

Eftir leik kom upp atvik þar sem Bragi Rúnar Axelsson, starfsmaður Harðar, veittist að Daníel Berg Grétarssyni, þjálfara Stjörnunnar. Samkvæmt yfirlýsingu Stjörnunnar hafði Bragi Rúnar í frammi hótanir í garð Daníels. Samkvæmt heimildum Handkastsins hótaði Bragi Rúnar, Daníel Berg lífláti og öðrum fjölskyldu meðlimum Daníels.

Handkastið hefur fengið nokkur skilaboð í dag um atvikið þar sem vitni segja frá því að Bragi Rúnar og Daníel Berg hafi lent í orðaskiptum snemma í leiknum og það hafi haldið áfram út allan leikinn. Eftir leik virðist sem svo að Daníel Berg, þjálfari Stjörnunnar sé nokkuð rólegur og þakkar öllum leikmönnum Harðar og dómurum leiksins fyrir leikinn.

Leikurinn var sýndur í Handboltapassanum og má sjá myndskeið af atvikinu hér að neðan. Þegar kom að því að þakka Braga Rúnari fyrir leikinn sést í myndskeiðinu þar sem Bragi tekur í hálsmál Daníels og færir í kjölfarið vinstri hönd sína upp að andliti hans.

Samkvæmt heimildum Handkastsins lét Daníel Berg miður falleg orð í garð Braga á meðan leik stóð.

Stjórn handknattleiksdeildar Stjörnunnar fordæmir atvikið og segir að málinu verði vísað til HSÍ til meðferðar.

Yfirlýsing Stjörnunnar í heild sinni:

„Stjórn Handknattleiksdeildar Stjörnunnar fordæmir atvik sem varð síðastliðna helgi í leik Harðar og Stjörnunnar í 3. flokki karla á Ísafirði, þar sem þjálfari Harðar veittist að þjálfara Stjörnunnar og hafði í frammi hótunum við hann.

Stjórn Handknattleiksdeildar Stjörnunnar áréttar að þjálfarar og annað starfsfólk íþróttahreyfingarinnar skuli ávallt sýna gott fordæmi í samskiptum, hvort sem er utan vallar eða innan.

Málinu verður vísað til HSÍ til þóknanlegrar meðferðar.“

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top