Handknattleiksdeild Harðar hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna atviks sem kom upp eftir leik Harðar og Stjörnunnar 2 í 3. flokki karla á Ísafirði á sunnudagskvöld. Stjarnan sendi frá sér yfirlýsingu í gær þar sem félagið fordæmdi atvikið og sagði að starfsmaður Harðar hefði veist að Daníel Berg Grétarssyni, þjálfara Stjörnunnar, og haft í frammi hótanir við hann. Stjarnan tilkynnti jafnframt að málinu yrði vísað til HSÍ. Handkastið fjallaði um málið í gær og sagði frá því að samkvæmt heimildum Handkastsins hafi Bragi Rúnar Axelsson, hótað Daníel Berg og fjölskyldu meðlimum hans lífláti. Í tilkynningunni frá Herði hafnar félagið þeim ásökunum. Hörður svarar nú yfirlýsingu Stjörnunnar og segir hana ekki gefa rétta mynd af því sem gerðist. VEITTIST AÐ ÞJÁLFARA STJÖRNUNNAR OG HAFÐI HÓTANIR Í GARÐ HANS Hörður segir þá ásökun koma frá Daníel einum og að ekkert vitni styðji hana. Félagið setur jafnframt fram sína lýsingu á aðdraganda atviksins. Hörður segir vitni greina frá því að Daníel hafi ítrekað viðhaft mjög ljót ummæli um leikmenn, þjálfara og aðstoðarþjálfara Harðar meðan á leiknum stóð. Sum þeirra hafi fallið í áheyrn barna. Í yfirlýsingunni er einnig fjallað um atvikið sem kom upp þegar þjálfararnir tókust í hendur eftir leik. Hörður segir Daníel hafa kreist hönd aðstoðarþjálfara félagsins og ýtt harkalega í bringu hans. Aðstoðarþjálfari Harðar, Bragi Rúnar Axelsson hafi í kjölfarið losað sig „á klaufalegan hátt“. Félagið viðurkennir að hann hafi ekki átt að stugga við Daníel, það hafi verið rangt og aðstoðarþjálfarinn hafi viðurkennt það. Hann hafi jafnframt beðið Daníel afsökunar strax eftir leik en ekki fengið svar. Hörður ætlar nú að tilkynna framkomu Daníels til HSÍ og samskiptaráðgjafa íþrótta- og æskulýðsstarfs. Félagið segist jafnframt ætla að vinna með HSÍ að meðferð málsins og vísa til vitna máli sínu til stuðnings. Bæði félög hafa því boðað að málið fari inn á borð HSÍ. Yfirlýsing Harðar í heild sinni: „Vegna fréttaflutnings og yfirlýsingar Stjörnunnar um atvik eftir leik Harðar og Stjörnunnar 2 í 3. flokki karla á Ísafirði vill félagið koma eftirfarandi á framfæri. Yfirlýsing Stjörnunnar gefur ekki rétta mynd af því sem gerðist. Það er miður þegar fréttir eru sagðar einhliða, eingöngu frá sjónarhóli annars aðilans. Það rýrir fréttagildi þeirra og trúverðugleika. Hörður hafnar alfarið fullyrðingum um að aðstoðarþjálfari félagsins hafi hótað þjálfara Stjörnunnar eða fjölskyldu hans lífláti. Það er ósatt. Ásökunin kemur frá þjálfara Stjörnunnar einum og ekkert vitni styður hana. Svo alvarlegar ásakanir eiga ekki heima í opinberri umræðu án nokkurrar stoðar. Rétt skal vera rétt. Það er engum til framdráttar að skálda málsatvik. Samkvæmt vitnum viðhafði þjálfari Stjörnunnar, Daníel Berg Grétarsson, ítrekað mjög ljót ummæli í leiknum um leikmenn Harðar, þjálfara og aðstoðarþjálfara Harðar. Sum ummælin féllu í áheyrn barna og fjöldi vitna var að þessari hegðun hans. Að leik loknum kreisti þjálfari Stjörnunnar hönd aðstoðarþjálfara Harðar og ýtti harkalega í bringu hans. Aðstoðarþjálfari Harðar losaði sig frá á klaufalegan hátt. Hann átti ekki að stugga við þjálfara Stjörnunnar. Það var rangt og hann hefur viðurkennt það. Hann bað þjálfara Stjörnunnar afsökunar strax að leik loknum en fékk engin svör. Aðstoðarþjálfari Harðar er sjálfboðaliði. Launaðir starfsmenn íþróttahreyfingarinnar hafa enga heimild til að veitast að sjálfboðaliðum með hótunum og niðrandi orðum, eins og þjálfari Stjörnunnar gerði í vitna viðurvist, og því síður að ungum leikmönnum annarra liða. Hörður mun tilkynna framkomu þjálfara Stjörnunnar til HSÍ og samskiptaráðgjafa íþrótta- og æskulýðsstarfs. Félagið mun vinna með HSÍ að meðferð málsins í heild sinni og vísar á vitni máli sínu til stuðnings. Ungir leikmenn eiga rétt á að allir fullorðnir í kringum leikinn sýni gott fordæmi. Það á við um bæði lið. Handknattleiksdeild Harðar“

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.