Elmar og félagar sneru taflinu við í Ludwigshafen
Instagram

Elmar Erlingsson skoraði þrjú mörk þegar Nordhorn-Lingen vann Ludwigshafen á útivelli, 33–29, í þýsku B-deildinni í handbolta í gærkvöldi. Gestirnir voru fjórum mörkum undir í hálfleik, 18–14, en náðu að snúa leiknum sér í vil með sterkum síðari hálfleik.

Heimamenn höfðu yfirhöndina fyrir hlé og komust mest sex mörkum yfir, 18–12. Nordhorn-Lingen skoraði hins vegar síðustu tvö mörk hálfleiksins og minnkaði muninn áður en gengið var til búningsherbergja.

Eftir hlé gekk heimamönnum illa að finna svör við sjö gegn sex sóknarleik Nordhorn-Lingen. Ludwigshafen leiddi enn 23–21 á 42. mínútu en þá skoruðu gestirnir sjö mörk í röð. Elmar skoraði síðasta markið í þeirri rispu og kom Nordhorn-Lingen í 28–23 á 51. mínútu. Heimamenn minnkuðu muninn í 31–29 undir lokin en gestirnir svöruðu með síðustu tveimur mörkum leiksins.

Nordhorn er í 6.sæti þýsku B-deildarinnar eftir sigurinn með sjö stig. Hafa skal það í huga að vegna fjárhagsvandræða félagsins verða sex stig dregin af félaginu að loknum öllum leikjum á tímabilinu.

Maximilian Lux var markahæstur hjá Nordhorn-Lingen með níu mörk, þar af fimm úr vítum. Tarek Marschall skoraði sex mörk og Christian Wilhelm fimm. Kacper Ligarzewski varði tólf skot í marki liðsins.

Hjá Ludwigshafen voru Marc-Robin Eisel og Friedrich Schmitt markahæstir með sex mörk hvor.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top