Ómar Ingi Magnússon náði stórum áfanga í þýsku Bundesligunni í gær þegar hann skoraði sitt 1.250. mark í deildinni í stórsigri Magdeburg á Kiel, 32-26. Ómar Ingi fór á kostum í leiknum og var markahæsti leikmaður Magdeburg með ellefu mörk þegar þýsku meistararnir lögðu Kiel að velli á heimavelli. Hann náði áfanganum snemma í síðari hálfleik. Ómar Ingi steig þá á vítalínuna á 36. mínútu og kom Magdeburg í 19-12. Markið var hans 1.250. í þýsku Bundesligunni. Það sem gerir afrekið enn eftirtektarverðara er að Ómar Ingi hefur skorað öll mörkin fyrir eitt og sama félagið. Hann gekk til liðs við Magdeburg frá Álaborg sumarið 2020 og hefur leikið með félaginu allar götur síðan. Hann varð markakóngur Bundesligunnar tímabilið 2020/21 á sínu fyrsta ári með Magdeburg eftir að hafa skorað 274 mörk og var síðan valinn besti leikmaður deildarinnar tímabilið 2021/22. Selfyssingurinn hafði áður leikið með Selfossi og Val hér á landi áður en hann hélt til Danmerkur árið 2016. Þar lék hann fyrst með Aarhus í tvö ár og síðan Álaborg frá 2018 til 2020 áður en Magdeburg kallaði. Ómar Ingi hefur því skorað 1.254 Bundesligu-mörk fyrir Magdeburg frá komu sinni til Þýskalands fyrir rúmum sex árum. Guðjón Valur Sigurðsson er markahæsti Íslendingurinn í sögu Bundesligunnar með 2.110 mörk samkvæmt tölfræði deildarinnar. Ómar Ingi á því enn nokkuð í land með að ná Guðjóni.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.