Ísland með fjórða flesta leikmenn í Bundesligunni
Andreas Gora /AFP

Íslendingar eru áfram afar áberandi í þýsku Bundesligunni í handbolta en 14 íslenskir leikmenn leika í deildinni á yfirstandandi tímabili. Aðeins þrjár þjóðir eiga fleiri fulltrúa samkvæmt samantekt yfir þjóðerni leikmanna deildarinnar.

Þýskaland er eðlilega langfjölmennast með 188 leikmenn. Danir koma næstir með 23 og Svíar eru 22. Þar á eftir kemur Ísland í fjórða sæti með 14 leikmenn, einum fleiri en Noregur.

Talan undirstrikar hversu stórt hlutfall íslenskra landsliðsmanna leikur í einni sterkustu deild heims. Magdeburg eitt og sér er með þrjá Íslendinga í sínum röðum; Ómar Inga Magnússon, Gísla Þorgeir Kristjánsson og Elvar Örn Jónsson.

Hinir ellefu Íslendingarnir sem leika í þýsku Bundesligunni eru, Viggó Kristjánsson, Andri Már Rúnarsson, Hauk Þrastarson, Arnar Frey Arnarsson, Elliða Snæ Viðarsson, Garðar Ingi Sindrason Teit Örn Einarsson, Ými Örn Gíslason, Einar Þorstein Ólafsson, Reynir Þór Stefánsson og Sigvaldi Björn Guðjónsson.

Tíu fjölmennustu þjóðirnar í Bundesligunni:

  1. Þýskaland – 188 leikmenn 
  2. Danmörk – 23 
  3. Svíþjóð – 22 
  4. Ísland – 14
  5. Noregur – 13 
  6. Sviss – 11 
  7. Króatía – 10 
  8. Spánn – 10 
  9. Holland – 10 
  10. Austurríki – 7

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top