Ísabella gengin í raðir Íslandsmeistara Vals
ÍR

Markvörðurinn Ísabella Schöbel Björnsdóttir er gengin í raðir Íslands- og bikarmeistara Vals og mun leika með liðinu í Olís-deildinni. Ísabella gæti leikið sinn fyrsta leik með Val í kvöld þegar liðið fer norður og mætir þar KA/Þór í 4.umferð Olís-deildarinnar.

Ísabella kemur til Vals frá ÍR, þar sem hún hefur leikið undanfarin misseri. Hún er fædd árið 2004 og hefur verið viðloðandi yngri landslið Íslands.

Samkvæmt heimildum Handkastsins var áhugi á Ísabellu víðar í sumar og reyndi ÍBV meðal annars að fá markvörðinn unga til liðs við sig. Hún hefur nú hins vegar ákveðið að ganga til liðs við Íslands- og bikarmeistarana á Hlíðarenda.

Ísabellu er ætlað að fylla skarð færeyska markvarðarins Mariu Beder, sem yfirgaf herbúðir Vals á dögunum eftir stutta dvöl hér á landi.

Valur styrkir því markvarðahóp sinn með komu Ísabellu, sem þrátt fyrir ungan aldur hefur þegar aflað sér reynslu í meistaraflokki og verið í landsliðsumhverfinu hjá yngri landsliðum Íslands.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top