Frammistaða Brynjars Narfa Arndal í leik FH gegn Bidasoa í 1.umferð Evrópudeildarinnar í síðustu viku var til umræðu í nýjasta uppgjörsþætti Handkastsins. Brynjar Narfi var markahæstur FH-inga með átta mörk ásamt Símoni Michael Guðjónssyni en Brynjar Narfi er fæddur árið 2010 og hefur verið í stóru hlutverki hjá FH í upphafi tímabils. ,,Brynjar Narfi er 16 ára og ef hann væri í Svíi, þá væri hann sennilega ekki í hóp hjá sænsku liði en í staðinn er hann farinn að vekja athygli erlendra fjölmiðla út um allt og kominn í highlights video frá EHF með allt í lagi marki gegn Bidasoa. Ekki það, að hann hafi ekki verið kominn á radarinn þá er hann virkilega kominn á radarinn núna. Maður hafði heyrt að Aron Pálmarsson ætlaði sér að koma honum hægt og rólega inn í FH-liðið en ég held að hann geti það ekki," sagði Stymmi klippari og Einar Ingi Hrafnsson tók undir þau orð. ,,Hann hefur í undanförnum leikjum verið svolítið að taka yfir FH-liðið sem ég held að sé jákvætt. Ómar Darri hefur verið að reyna aðeins of mikið í þessum fyrstu leikjum en Brynjar Narfi er að verða stöðugri og gerir FH-liðið heilsteyptara.” ,,Talandi um líkamlegt atgervi, ég leit út eins og núðla á þessum aldri. Hann er bara orðinn eins og fullorðinn karlmaður þarna inná, 16 ára gamall,” sagði Stymmi klippari sem var í kjölfarið spurður að því hverskonar núðla hann leit út fyrir að hafa verið, 16 ára. Brynjar Narfi, verður í eldlínunni annað kvöld þegar FH fær franska stórliðið, Limoges í heimsókn í 2.umferð Evrópudeildarinnar.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.