Fyrrum Valsarar fögnuðu sigrum í Póllandi og á Spáni
Skjáskot

Tveir fyrrverandi leikmenn Vals, Þorvaldur Örn Þorvaldsson og Þorgils Jón Svölu Baldursson, voru í eldlínunni með liðum sínum í Póllandi og á Spáni í gærkvöldi. Báðir gátu þeir fagnað sigri.

Þorvaldur Örn Þorvaldsson og félagar í Wybrzeże Gdańsk unnu stórsigur á Piotrkowianin, 38-23, á heimavelli í pólsku úrvalsdeildinni. Wybrzeże lagði grunninn að sigrinum strax í fyrri hálfleik og leiddi 20-12 að honum loknum. 

Þorvaldur komst ekki á blað í leiknum. Wiktor Tomczak var markahæstur hjá Wybrzeże með sjö mörk en liðið hefur nú unnið þrjá af fyrstu fimm leikjum sínum í deildinni og er með níu stig.

Þetta var annar sigur Wybrzeże á aðeins fjórum dögum en liðið gerði sér lítið fyrir og vann Gummersbach, 38-34, á útivelli í Evrópudeildinni á þriðjudagskvöld. Þorvaldur skoraði tvö mörk í þeim leik.

Á Spáni vann Caserío Ciudad Real dramatískan tveggja marka sigur á Ademar León, 35-33, í spænsku ASOBAL-deildinni. Heimamenn voru með sex marka forskot í hálfleik, 19-13, og náðu mest átta marka forystu eftir hlé áður en Ademar gerði leikinn spennandi undir lokin.

Þorgils Jón Svölu Baldursson skoraði eitt mark fyrir Caserío í leiknum. Jorge Maqueda og David Cadarso voru markahæstir heimamanna með sex mörk hvor.

Caserío hefur farið vel af stað á tímabilinu og er enn taplaust í spænsku deildinni eftir þrjá leiki, með tvo sigra og eitt jafntefli.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top