Hvíti Riddarinn og Grótta mættust í Powerade bikar karla í kvöld en leikið var í Mosfellsbæ og var þetta aldrei spennandi því Grótta var með yfirhöndina alllan leikinn og voru níu mörkum yfir í hálfleik 9-18. Grótta gaf ekkert eftir í síðari hálfleik og lönduðu átján marka sigri og lokatölur í Mosfellsbæ 22-40 og Grótta flýgur áfram í næstu umferð bikarkeppnarinnar. Atkvæðamestir í liði Hvíta Riddarans voru Bjarki Lárusson og Valur Þorsteinsson báðir með fimm mörk. Atkvæðamestur í liði Gróttu var Sæþór Atlason en hann skoraði níu mörk. Ásgeir Bragi Bryde Þórðarson skoraði fimm og aðrir minna. 

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.