Stymmi spáir í spilin: 5. umferð Olísdeildar kvenna

Stymmi Klippari mun í allan vetur spá í spilin og tippa á hvernig komandi umferð mun fara í Olís deildum karla og kvenna.

Hér að neðan má sjá hvernig hann telur að 5.umferð fari í Olís deild kvenna.

Grótta – KA/Þór (Föstudagur 19:30)  /  Sigurvegari: Grótta

Grótta að taka þriðja heimaleikinn í röð en þær hafa tapað síðustu tveim gegn liðum sem þær hefðu viljað fá eitthvað út úr. KA/Þór er ennþá í leit af fyrstu stigum tímabilsins og hugsa sér eflaust gott til glóðarinnar að sækja stigin 2 út á Seltjarnarnes. Ég held þó að biðin eftir fyrstu stigum tímabilsins verði lengri hjá Akureyringum og Grótta taka bæði stigin í fyrsta leik umferðarinnar.

ÍR– ÍBV (Laugardagur 13:00)  /  Sigurvegari: ÍBV

ÍR með fullt hús stiga eftir fyrstu fjórar umferðirnar fá alvöru próf þennan laugardaginn þegar ÍBV kemur í heimsókn. ÍBV verði á fínu róli eftir að hafa tapað gegn Val í 2.umferð og ég held að þær fari í Skógarselið á laugardaginn og verði fyrsta liðið í vetur til þess að vinna ÍR.

Haukar – Selfoss (Laugardagur 14:00)  /  Sigurvegari: Haukar

Heitasta lið landsins í kvennadeildinni eru Haukar og þar fer Jóhanna Margrét fremst í flokki meðan Selfoss hafa ekki ennþá náð að vinna leik eftir óvæntan sigur á Val í fyrstu umferð mótsins. Haukar og Jóhanna halda uppteknum hætti og munu vinna Selfoss á laugardaginn og aldrei að vitna nema Jóhanna Margrét verði enn einu sinni í liði umferðinnar hjá Handkastinu.

Fram –  Valur (Laugardagur 14:30)  /  Sigurvegari: Fram

Alvöru Reykjarvíkurslagur þar sem stórveldi síðustu ára mætast. Hafdís var meidd í síðasta leik Vals, verður hún með á laugardaginn? Ég ætla gefa mér að hún sé ennþá meidd þegar þessi spá er rituð og stelpurnar hans Halla Þorvarðar geri sér lítið fyrir og vinni Valsara og verði áfram á toppi deildarinnar með fullt hús stiga.

Stjarnan – HK (Sunnudagur 18:00)  /  Sigurvegari: Stjarnan

Lokaleikur umferðarinnar fer fram í Garðabænum á sunnudaginn. Ef HK ætla að koma sér á blað í vetur þá verða þær að sækja eitthvað í þessum leik gegn Stjörnunni. Hvorugt liðið má við því að tapa þessum leik og vilja Stjarnan skilja HK eftir á botni deildinnar og fjarlægast hann sjálfar. Ég held að Stjörnuliðið sé komið lengra með sitt lið og fari með sigur af hólmi á sunnudaginn.

1.umferð (4 réttir)
2.umferð (4 réttir)
3. umferð (4 réttir)
4.umferð (5 réttir)

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top