Þorvaldur Örn Þorvaldsson, línumaður pólska félagsins, Wybrzeze Gdansk skoraði eitt af flottustu mörkum 2.umferðar í Evrópudeildinni sem fram fór í gær. Það skoraði hann um miðbik seinni hálfleiks í jafntefli liðsins gegn Eurofarm Pelister frá Norður-Makedóníu. Þetta glæsilega mark Þorvaldar var hans eina í leiknum en pólska liðið er með þrjú stig eftir fyrstu tvær umferðirnar, eftir glæstan sigur á Gummersbach í 1.umferðinni. Markið má sjá hér að neðan auk annarra glæsilegra marka sem voru valin þau flottustu í 2.umferðinni. The last one is just CRAZY 🤯😱 #ehfel #elm #handball https://t.co/MFBi3hM2I2

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.