Jafntefli í Íslendingaslagnum – Bæði lið áfram ósigruð
Blomberg Lippe

Thüringer og Blomberg-Lippe skildu jöfn, 30–30, í Íslendingaslag í 5. umferð þýsku Bundesligunnar í gærkvöldi. Alfa Brá Oddsdóttir Hagalín er á mála hjá Thüringer en Elín Rósa Magnúsdóttir og Díana Dögg Magnúsdóttir leika með Blomberg-Lippe.

Elín Rósa og Díana Dögg skoruðu tvö mörk hvor fyrir gestina en Alfa Brá komst ekki á blað hjá Thüringer. Allar voru þær valdar í íslenska landsliðið sem kemur saman í lok október og leikur tvo vináttulandsleiki gegn Póllandi.

Blomberg-Lippe hafði yfirhöndina í fyrri hálfleik og leiddi með þremur mörkum í leikhléi, 17–14. Heimakonur náðu hins vegar að jafna metin í 18–18 snemma í síðari hálfleik og eftir það var baráttan jöfn. Gestirnir voru tveimur mörkum yfir undir lokin en Thüringer náði að tryggja sér stig. 

Levke Kretschmann var markahæst hjá Thüringer með átta mörk og Nieke Kühne skoraði jafn mörg fyrir Blomberg-Lippe. Bæði lið höfðu unnið fyrstu fjóra deildarleiki sína og eru því áfram ósigruð með níu stig eftir fimm umferðir.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top