Val Arnars Péturssonar, landsliðsþjálfara kvenna í handbolta, á landsliðshópnum fyrir komandi æfingaleiki gegn Póllandi var til umræðu í nýjasta þætti Handkastsins. Þar var meðal annars rætt um fjarveru Jóhönnu Margrétar Sigurðardóttur úr hópnum. Stymmi klippari, var spurður hvort eitthvað hefði komið honum á óvart í vali Arnars að þessu sinni. „Það kom mér ekkert á óvart í þessum hópi. Það hafa að sjálfsögðu skapast umræður á kaffistofum landsins af hverju Jóhanna Margrét var ekki í hópnum en eftir að við fórum að kafa dýpra í málið og rýna í gögnin þá er hún að skora megnið af mörkunum sínum á milli 1-2 og við erum fullkomlega settar þar, miðað við tölfræði úr síðasta stórmóti.“ Stymmi telur að þrátt fyrir að Jóhanna Margrét hafi staðið sig vel hér á landi sé hún ekki endilega að bjóða upp á eitthvað annað en þær skyttur sem fyrir eru í íslenska landsliðinu. „Arnar Pétursson virðist ekki hafa not fyrir hana að svo stöddu. Þó að hún sé töluvert hærri en aðrir útispilarar landsliðsins þá er hún að koma með svipaða hluti að borðinu eins og þær.“ Jóhanna Margrét hefur verið áberandi í íslenskum handbolta en Stymmi segir að það sé að lokum landsliðsþjálfarans að meta hvaða leikmenn henti best í hans leikskipulag. „Jóhanna hefur verið flott hérna heima eins og margoft hefur verið tekið fram en Arnar telur að aðrir leikmenn séu framar í goggunarröðinni og allir þjálfarar í heiminum velja það lið sem þeir treysta hvað best til að ná árangri," sagði Davíð Már Kristinsson gestur í Handkastinu og penni á vef Handkastsins. Þrátt fyrir að Davíð skilji ákvörðun Arnars telur hann að Jóhanna Margrét hefði vel getað fengið tækifæri til að sýna sig á landsliðsæfingum. „En það má ekki taka það af Jóhönnu, hún hefur verið frábær og auðvitað hefði hún mátt í það minnsta fá tækifæri í æfingahópnum en eins og ég segi, þjálfarar velja alltaf sitt sterkasta lið,“ sagði Davíð Már Kristinsson í nýjasta þætti Handkastsins. Íslenska kvennalandsliðið undirbýr sig nú fyrir Evrópumótið og eru æfingaleikirnir gegn Póllandi liður í þeim undirbúningi.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.