Þessir fimm leikmenn hafa komið mest á óvart í Olís-deild kvenna
Sævar Jónasson

Davíð Már Kristinsson, gestur í nýjasta þætti Handkastsins, opinberaði í þættinum sinn topp fimm lista yfir þá leikmenn sem hafa komið honum hvað mest á óvart í Olís-deild kvenna það sem af er tímabili.

Fjórum umferðum er lokið í Olís-deild kvenna og hafa nokkrir leikmenn vakið sérstaka athygli fyrir frammistöðu sína á fyrstu vikum tímabilsins.

Það er Katrín Scheving, leikmaður nýliða Gróttu, sem trónir á toppi lista Davíðs Más en liðsfélagi hennar, Arnbjörg Bertha Kristjánsdóttir, er einnig á listanum.

Í öðru sæti er Valgerður Elín Snorradóttir, leikmaður Stjörnunnar, og í því þriðja er Selma Þóra Jóhannsdóttir, leikmaður Selfoss.

Tinna Ósk Gunnarsdóttir, leikmaður nýliða HK, er síðan í fjórða sæti listans.

Athygli vekur að tveir leikmenn Gróttu eru á listanum en alls koma leikmennirnir fimm frá fjórum félögum. Selma Þóra Jóhannsdóttir er einnig á listanum, markvörður Selfoss sem var fyrir 5.umferðina með flesta varða bolta af öllum markvörðum deildarinnar.

5.umferðin í Olís-deild kvenna lýkur í kvöld með leik Stjörnunnar og HK sem hefst klukkan 18:00 í Heklu-höllinni.

Topp fimm listi Davíðs Más:

  1. Katrín Scheving – Grótta
  2. Valgerður Elín Snorradóttir – Stjarnan
  3. Selma Þóra Jóhannsdóttir – Selfoss
  4. Tinna Ósk Gunnarsdóttir – HK
  5. Arnbjörg Bertha Kristjánsdóttir – Grótta

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top