Sjáðu sirkusmark Gísla eftir sendingu frá Ómari
SVEN SIMON /AFP

Gísli Þorgeir Kristjánsson leikmaður Magdeburg skoraði eitt flottasta mark 3.umferðar í riðlakeppni Meistaradeildarinnar í vikunni að mati samfélagsmiðladeildar, EHF.

Gísli skoraði svokallað sirkusmark eftir stoðsendingu frá liðsfélaga sínum, Ómari Inga Magnússyni í sigri Magdeburg gegn Kielce í Póllandi. Markið var það 28. hjá þýska liðinu en Gísli Þorgeir og Ómar Ingi fóru á kostum í leiknum og skoruðu ellefu mörk hvor í sigri Magdeburg.

Samfélagsmiðladeild EHF hefur valið fimm flottustu mörk 3.umferðarinnar en þar var mark Gísla Þorgeirs í 2.sætið á eftir marki frá Mathias Gidsel sem skoraði 17 mörk í sigri Füchse Berlin gegn Porto.

Hér að neðan má sjá fimm flottustu mörk 3.umferðar í Meistaradeild Evrópu.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top