Flensburg áfram á toppnum eftir sigur í Íslendingaslagnum
Philipp Szyza / AFP

Flensburg vann sjö marka útisigur á Hannover-Burgdorf, 39–32, í þýsku Bundesligunni í gærkvöldi. Arnar Freyr Arnarsson skoraði eitt mark fyrir gestina og Sigvaldi Björn Guðjónsson eitt fyrir Hannover-Burgdorf, sem tapaði sínum fyrsta heimaleik á tímabilinu.

Flensburg byrjaði af krafti og komst í 6–1. Gestirnir náðu síðan átta marka forskoti, 17–9, en Hannover náði að minnka muninn fyrir hálfleik og var staðan þá 20–16, Flensburg í vil.

Heimamenn héldu í við Flensburg í síðari hálfleik og voru fjórum mörkum undir, 34–30, þegar um sex mínútur voru eftir. Gestirnir reyndust hins vegar sterkari á lokakaflanum og Arnar Freyr skoraði síðasta mark leiksins.

Aymeric Minne var markahæstur á vellinum með tólf mörk fyrir Flensburg. Simon Pytlick, Marko Grgić og Emil Bergholt skoruðu fimm mörk hver. Hjá Hannover var August Pedersen markahæstur með átta mörk, Lukas Stutzkeskoraði sjö og Renars Uscins fimm.

Íslendingarnir skoruðu því eitt mark hvor í leiknum en Simon Möller varði tólf skot í marki Flensburg og Simon Gadetíu fyrir Hannover.

Flensburg er á toppi deildarinnar með 15 stig eftir átta leiki og hefur enn ekki tapað. Hannover-Burgdorf er í sjöunda sæti með níu stig eftir átta leiki.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top