Íslenskir handboltamenn voru í eldlínunni í Noregi, Danmörku og Svíþjóð í gærkvöldi. Elverum tryggði sér sæti í undanúrslitum norska bikarsins, Ribe-Esbjerg vann Íslendingaslag í Danmörku og Amo fagnaði útisigri í Svíþjóð. Tryggvi Þórisson skoraði eitt mark þegar Elverum vann ríkjandi bikarmeistara Runar, 33–30, á heimavelli. Benjamin Berg var markahæstur hjá Elverum með tíu mörk. Elverum var yfir í hálfleik, 18–14, og náði sjö marka forskoti snemma í síðari hálfleik, 22–15. Runar minnkaði muninn í tvö mörk en heimamenn héldu undan og tryggðu sér sæti í undanúrslitum. Í Danmörku hafði Ribe-Esbjerg betur gegn Holstebro á útivelli, 38–33. Elvar Ásgeirsson skoraði þrjú mörk fyrir sigurliðið en Jóhannes Berg Andrason fjögur fyrir Holstebro. Ribe-Esbjerg hafði fimm marka forskot í hálfleik, 19–14, og munurinn var sá sami í leikslok. Mads Aarhus og Karl Wallinius voru markahæstir hjá gestunum með sjö mörk hvor. Benedikt Gunnar Óskarsson var í leikmannahópi Holstebro í fyrsta sinn en var ekki meðal markaskorara. Magnus Storgaard Pedersen var markahæstur hjá Holstebro með sjö mörk. Í Svíþjóð vann Amo fimm marka útisigur á Lugi, 35–30. Arnar Birkir Hálfdánsson komst ekki á blað hjá Amo en Mathias Mark Pedersen var markahæstur með ellefu mörk. Arnór Viðarsson var markahæstur hjá Karlskrona með sex mörk þegar liðið tapaði á útivelli gegn Malmö, 34–30. Amo er í þriðja sæti sænsku deildarinnar með fimm stig eftir fjóra leiki en Karlskrona situr í tólfta sæti með tvö stig úr jafnmörgum leikjum.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.