Langþráður sigur Ísaks – Vandræði Mors-Thy halda áfram
Sina Schuldt / dpa Picture-Alliance via AFP)

TMS Ringsted, lið Ísaks Gústafssonar, vann sinn fyrsta sigur á tímabilinu í dönsku úrvalsdeildinni í dag þegar liðið lagði Nordsjælland að velli 32-26, á heimavelli. Fjórir leikir fóru fram í deildinni í dag þar sem Álaborg fagnaði einnig sigri en erfiðleikar Mors-Thy halda áfram.

TMS Ringsted hafði átt erfitt uppdráttar á fyrstu vikum tímabilsins og var án sigurs eftir átta umferðir, með aðeins eitt stig í neðsta sæti deildarinnar. Liðið náði loksins að brjóta ísinn í dag með sex marka sigri á Nordsjælland og tryggði sér þar með afar mikilvæg tvö stig í fallbaráttunni. 

Álaborg komst aftur á sigurbraut eftir stórt tap gegn GOG í síðustu umferð. Danska stórliðið lagði KIF Kolding að velli, 37-32, eftir að hafa leitt 18-17 í hálfleik.

Mads Hoxer var markahæstur hjá Álaborg með sex mörk en Juri Knorr og Patrick Helland Anderson skoruðu fimm mörk hvor. Hjá Kolding var Hjalte Langmack markahæstur með níu mörk. 

Vandræði Mors-Thy í dönsku úrvalsdeildinni halda hins vegar áfram. Liðið steinlá á heimavelli gegn Sønderjyske, 24-34, og hefur nú tapað þremur deildarleikjum í röð.

Mors-Thy er sem kunnugt er í riðli með Val í Evrópudeildinni. Liðin mættust á Hlíðarenda í lok september þar sem Valsmenn unnu sannfærandi ellefu marka sigur, 39-28. Mors-Thy vann þó ungverska liðið Tatabánya, 35-32, í Evrópudeildinni síðastliðinn þriðjudag. 

Ísak Gústafsson skoraði þrjú mörk fyrir Ringsted í sigrinum. Heimamenn lögðu grunninn að sigrinum með frábærum fyrri hálfleik og leiddu 20-14 þegar liðin gengu til búningsherbergja. Síðari hálfleikur endaði 12-12 og sex marka sigur Ringsted því staðreynd.

Rasmus Graffe og Ahmed Sameh voru markahæstir hjá Ringsted með fimm mörk hvor en markvörðurinn Šimon Mizera varði 35% skotanna sem hann fékk á sig. 

Í fjórða leik dagsins vann Skjern þriggja marka heimasigur á Bjerringbro-Silkeborg, 34-31, eftir að hafa verið undir 18-19 í hálfleik. René Rasmussen var markahæstur hjá Skjern með sex mörk en Rasmus Lauge, Lasse Sunde Lid og Buster Juul skoruðu átta mörk hver fyrir gestina. 

Úrslit dagsins í dönsku úrvalsdeildinni:

TMS Ringsted – Nordsjælland 32-26

Álaborg – KIF Kolding 37-32

Mors-Thy – Sønderjyske 24-34

Skjern – Bjerringbro-Silkeborg 34-31

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top