Orri Freyr Þorkelsson skoraði fjögur mörk þegar Sporting gerði 35–35 jafntefli við Pick Szeged á útivelli í þriðju umferð riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu í kvöld. Staðan í hálfleik var einnig jöfn, 16–16. Sporting náði þriggja marka forskoti í fyrri hálfleik en heimamenn unnu sig aftur inn í leikinn. Svipað var uppi á teningnum eftir hlé þegar portúgalska liðið komst yfir en Szeged neitaði að gefast upp. Magnus Abelvik Rød jafnaði metin á 56. mínútu og spennan hélst allt til loka. Sporting átti síðustu sóknina en heimamenn vörðust og tryggðu sér stig. Mario Šoštarić var markahæstur á vellinum með ellefu mörk fyrir Szeged. Magnus Abelvik Rød og Miklós Rostaskoruðu fimm mörk hvor. Hjá Sporting voru Costa-bræðurnir, Martim og Francisco, markahæstir með átta mörk hvor samkvæmt leikskýrslu EHF. Orri Freyr skoraði fjögur mörk, þar af þrjú úr vítaköstum. Óvenjulegt er að leikið sé í Meistaradeild karla á laugardegi, en Leikurinn var valinn leikur umferðarinnar hjá EHF og fór því fram á laugardegi, en venjulega er leikið í Meistaradeild karla á miðvikudögum og fimmtudögum. Í kringum hann var efnt til stuðningsmannakvölds í Pick Arena undir yfirskriftinni „Blue night“, með ýmiss konar viðburðum og skemmtun. Sporting er á toppi D-riðils með fimm stig eftir þrjá leiki. GOG er í öðru sæti með fjögur stig, Szeged í því þriðja með þrjú og Kristianstad án stiga á botninum. Liðin mætast aftur í Lissabon fimmtudaginn 15. október.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.