Hildur Björnsdóttir, fyrirliði kvennaliðs Vals mun ekki leika meira með liðinu á yfirstandandi tímabili. Ástæðan er afar ánægjuleg en Hildur á von á sínu þriðja barni. Valur greindi frá tíðindunum á samfélagsmiðlum sínum í kvöld en Hildur á fyrir tvær dætur með eiginmanni sínum, Bjarti. Hildur hefur verið einn af lykilleikmönnum Vals undanfarin ár og því ljóst að fjarvera hennar verður mikil blóðtaka fyrir liðið það sem eftir lifir tímabils. Í tilkynningu Vals kemur fram að félagið muni sakna fyrirliðans bæði á æfingum og í leikjum. „Hildur hefur verið lykilleikmaður í Val og munu stelpurnar sakna hennar af æfingum og við Valsarar sakna hennar í leikjum,“ segir meðal annars í tilkynningu félagsins. Valsmenn senda Hildi og fjölskyldu hennar jafnframt sínar bestu hamingjuóskir vegna tíðindanna. Handkastið gerir slíkt hið sama.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.