Einar Ingi Hrafnsson, gestur í nýjasta þætti Handkastsins, gagnrýndi varnarleik Fram eftir 46–35 tap liðsins gegn FH í 16-liða úrslitum Powerade-bikarsins. Hann telur að Framarar þurfi að bæta við þjálfarateymið til að snúa þróuninni við. „Hvað er í gangi í Úlfarsárdalnum?“ spurði Arnar Daði Arnarsson, Sérfræðingurinn, þegar tapið kom til umræðu. „Ég átta mig hreinlega ekki á því. Að fá á sig 46 mörk í 16-liða úrslitum bikars er örugglega einsdæmi í slíkum toppslag. Maður hefur séð þetta þegar utandeildarlið mætir liði í efstu deild,“ sagði Einar Ingi. Hann benti á að Fram hefði lagt áherslu á bikarleikinn og fengið leikmenn til baka sem höfðu verið fjarri góðu gamni að undanförnu. „Talandi um orð Davíðs Más í síðasta þætti, þar sem lið eru að einbeita sér að deildinni, þá var Fram akkúrat hinum megin. Þeir voru að einbeita sér að þessum bikarleik. Það voru menn komnir til baka hjá Fram sem hafa ekki verið að spila að undanförnu.“ FH var með 82% skotnýtingu í leiknum og Einar Ingi sagði vandann ná lengra en til markvörslunnar. „Markmennirnir eru eitt, en varnarleikurinn er síðan hitt og hann virðist vera í algjörum molum. Það er eitthvað mikið í gangi og mér finnst eins og þeir verði að fá einhvern inn í þjálfarateymið. Það vantar einhverja aðra vídd en bara Einar Jónsson.“ Einar Ingi sagðist áður hafa talið að Sigurgeir Jónsson, Sissi, gæti verið rétti maðurinn til að koma inn í teymið. „Ég hef nefnt það áður að ég bjóst við því að Sissi yrði mættur þangað. Ég hélt að hann væri týpan sem þeir þyrftu, gæti aðeins létt á Einari og breytt andrúmsloftinu.“ Þrátt fyrir gagnrýnina útilokaði Einar Ingi ekki að Fram gæti snúið gengi sínu við. Hann rifjaði upp að liðið hefði orðið Íslandsmeistari fyrir tveimur árum eftir erfiða byrjun. „Ég er hins vegar ekkert að segja að þetta sé það sem koma skal hjá Fram. Maður hefur alveg séð þá snúa þessu við með einum leik og jafnvel verða Íslandsmeistara, eins og gerðist fyrir tveimur árum. Þá byrjaði þetta heldur ekki sérstaklega vel. En FH fékk á sig 27 mörk í fyrri hálfleik gegn Limoges nokkrum dögum áður. Mér finnst þetta ótrúlegt og leikmennirnir hljóta að skammast sín eftir þennan leik.“ Sérfræðingurinn taldi þá upp stór töp Fram að undanförnu og velti fyrir sér hvort leikmenn hefðu ekki þegar átt að vera komnir á þann stað fyrir bikarleikinn gegn FH og fyrst þeir væru ekki enn byrjaðir að skammast sín fyrir leikinn gegn FH afhverju þeir ættu að byrja á því núna. Fram og FH mætast í lokaleik 6.umferðar Olís-deildar karla á laugardaginn og þá getur Fram hefnt fyrir tapið gegn FH.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.