Óvænt varnarupplegg ÍR í upphafi leiks gegn ÍBV vakti athygli í síðasta þætti Handboltahallarinnar. ÍR tók tvo leikmenn Eyjakvenna úr umferð og sló þannig ÍBV út af laginu. „Það er mjög sjaldan sem maður sér að einhver einn leikmaður er tekinn úr umferð en þarna tekur ÍR tvo leikmenn ÍBV úr umferð. Þær gerðu þetta framan af og ÍBV var hreinlega ekki tilbúið. Þær töpuðu boltanum í fyrstu sókninni og þær vissu í raun ekkert hvað þær voru að gera,“ sagði Einar Ingi Hrafnsson. Hann taldi útspilið sniðugt og benti á að erfitt væri að búa sig undir slíka varnarútfærslu. „Þú æfir þetta ekkert. Þetta er svipað og Stefán, þjálfari Hauka, hann vill stundum gera eitthvað óvænt. Þetta var sniðugt hjá ÍR-ingunum og þetta gekk svo langt að þær komust í 9–6 en síðan varð sóknarleikurinn hjá þeim stirður.“ ÍBV vann að lokum 30–26 og varð þar með fyrsta liðið til að vinna ÍR á tímabilinu. 6.umferðin í Olís-deild kvenna hefst annað kvöld þegar Selfoss og HK mætast en ÍR mætir Haukum á laugardaginn klukkan 14:30 á meðan ÍBV fær Fram í heimsókn klukkan 14:00.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.