Pólska handknattleiksfélagið Industria Kielce hefur sent frá sér yfirlýsingu þar sem félagið vísar alfarið á bug ummælum sem eignuð hafa verið þjálfara liðsins, Krzysztof Lijewski, um þýska stórliðið SC Magdeburg og þjálfara þess, Bennet Wiegert. Ummælin hafa verið í dreifingu á samfélagsmiðlum en samkvæmt yfirlýsingu Kielce eru þau uppspuni frá fölskum samfélagsmiðlareikningi. „Við vísum alfarið á bug meintum ummælum Krzysztof Lijewski um SC Magdeburg og Bennet Wiegert sem hafa verið í dreifingu á samfélagsmiðlum. Þjálfari okkar lét þessi orð aldrei falla. Frásögnin er algjörlega uppspuni og kemur frá fölskum reikningi,“ segir í yfirlýsingu félagsins. Kielce hefur þegar haft samband við þýska blaðamenn sem tóku viðtöl við Lijewski í gær. Þeir hafa staðfest að þjálfarinn hafi aldrei látið umrædd ummæli falla. Þá segir félagið að samfélagsmiðlareikningurinn sem birti fréttina hafi áður ítrekað dreift röngum upplýsingum, meðal annars um SC Magdeburg. Kielce hvetur stuðningsmenn og fjölmiðla til að gæta að heimildum sínum og forðast að dreifa fölskum fréttum. Jafnframt er fólk varað við því að smella á grunsamlega tengla sem vísa á vefsíður með uppspunnum fréttum. „Íþróttaleg samkeppni á skilið virðingu og þátttakendur hennar og stuðningsmenn eiga rétt á áreiðanlegum upplýsingum,“ segir að lokum í yfirlýsingu Kielce. Kielce og Magdeburg mættust í 4.umferð Meistaradeildar Evrópu í gær þar sem Magdeburg hafði betur með þremur mörkum 30-27 en Gísli Þorgeir Kristjánsson var markahæstur í liði Magdeburg. Með sigrinum tryggði Magdeburg sér sæti í milliriðli keppninnar.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.