Stefan Kretzschmar, fyrrverandi þýsk landsliðsstjarna í handbolta, viðurkennir að honum þyki sum viðtöl og ummæli sín frá fyrri tíð vandræðaleg. Kretzschmar, sem var þekktur sem „handboltapönkarinn“ á sínum tíma, segir samfélagsmiðla hafa breytt því hvernig íþróttamenn tjá sig opinberlega. Kretzschmar, sem er 53 ára gamall, var þekktur fyrir óhefðbundinn stíl á ferli sínum. Húðflúr, sérstakar hárgreiðslur og umdeild ummæli urðu til þess að hann fékk viðurnefnið „handboltapönkarinn“. Í viðtali við Sports Illustrated viðurkennir hann að hann líti öðruvísi á sum ummæli sín í dag. „Sum viðtöl og ummæli mín frá þessum tíma eru að hluta til vandræðaleg. Á þeim tíma þótti þetta kannski flott. Í dag velti ég því fyrir mér hvort ég myndi vilja hafa leikmann eins og Stefan Kretzschmar var þá í mínu liði. Ég get ekki svarað þeirri spurningu afdráttarlaust játandi,“ sagði Kretzschmar. Á leikmannaferlinum gagnrýndi hann meðal annars dómara og forystumenn handboltans. Eftir að ferlinum lauk árið 2007 hélt hann áfram að vekja athygli með ummælum sínum. Í viðtali við t-online árið 2019 hélt hann því meðal annars fram að málfrelsi í íþróttum væri ekki lengur til staðar í eiginlegum skilningi. Kretzschmar hefur einnig áður kvartað yfir skorti á sterkum persónuleikum og litríkum karakterum í íþróttum nútímans. Hann telur unga leikmenn hafa orðið afar staðlaða í framkomu vegna fjölmiðlaþjálfunar. Að hans mati eiga samfélagsmiðlar stóran þátt í þessari þróun. „Fyrir mér tengist þetta samfélagsmiðlum. Áður fyrr gat maður látið frá sér ögrandi ummæli sem voru kannski til umræðu í viku og síðan gleymdust þau. Í dag verður hver einasta setning eftir á netinu að eilífu. Það breytir fólki,“ sagði Kretzschmar. Kretzschmar telur að samfélagsmiðlar hefðu haft bæði jákvæð og neikvæð áhrif á feril hans ef þeir hefðu verið til staðar þegar hann var atvinnumaður. „Það hefði verið bæði blessun og bölvun. Annars vegar hefði ég ekki getað leyft mér að lifa jafn sérviskulegu lífi og ég gerði, en hins vegar hefði ég líklega byggt upp gríðarlega stóran fylgjendahóp með mínum stíl,“ sagði hann. Kretzschmar er sjálfur með um 269 þúsund fylgjendur á Instagram. Hann segir samfélagsmiðla hafa ákveðið viðskiptalegt gildi en bendir jafnframt á að þeir gefi oft falska mynd af raunveruleikanum. „Þegar ég ræði við sjónvarpsstöðvar eða fyrirtæki skiptir útbreiðslan máli. En samfélagsmiðlar eru líka falskur heimur. Allir sýna fallegu hliðarnar á lífi sínu eða það sem þeim finnst skipta máli,“ sagði Kretzschmar.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.