Grótta semur við þrjá unga og efnilega
Grótta Sport

Handknattleiksdeild Gróttu hefur gengið frá samningum við þrjá unga og efnilega leikmenn úr eigin röðum. Þeir Kristján Ólafur Gíslason, Oliver Ørtenblad Bergmann og Tómas Orri Ólafsson hafa allir skrifað undir sína fyrstu samninga við félagið.

Leikmennirnir þrír hafa allir verið í lykilhlutverkum með 3. flokki og U-liði Gróttu og hafa jafnframt fengið tækifæri til að æfa með meistaraflokki karla. Þeir tóku allir þátt í undirbúningstímabili meistaraflokks í sumar og hefur Kristján Ólafur þegar fengið sínar fyrstu mínútur með aðalliðinu.

Oliver Ørtenblad Bergmann er rétthent skytta sem getur leikið bæði vinstra og hægra megin á vellinum. Hann þykir klókur og fjölhæfur leikmaður með góða skottækni.

Kristján Ólafur Gíslason er línumaður og öflugur varnarmaður sem leikur jafnan í miðri vörninni. Hann hefur tekið miklum framförum að undanförnu og þegar fengið að spreyta sig með meistaraflokki félagsins.

Tómas Orri Ólafsson er sömuleiðis rétthentur og fjölhæfur leikmaður sem getur leikið allar útileikstöðurnar. Hann hefur tekið stórstígum framförum undanfarna mánuði og þykir öflugur bæði í sókn og vörn.

Andri Sigfússon, þjálfari meistaraflokks karla hjá Gróttu, fagnar samningunum og segir þá mikilvægan þátt í framtíðaruppbyggingu félagsins.

„Við erum mjög ánægðir með að vera búnir að semja við þessa ungu stráka. Þeir voru viðloðandi meistaraflokkinn á undirbúningstímabilinu og því er þetta eðlilegt næsta skref í þeirra þróun. Við viljum halda áfram að byggja upp liðið með leikmönnum úr okkar eigin starfi og þessir samningar eru mikilvægur hluti af þeirri uppbyggingu,“ segir Andri.

Með samningunum heldur Grótta áfram að leggja áherslu á uppbyggingu meistaraflokks með uppöldum leikmönnum og skapa ungum leikmönnum tækifæri til að festa sig í sessi í aðalliði félagsins.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top