Alls komu sex markverðir við sögu þegar Haukar unnu sannfærandi sextán marka sigur á Fram, 39–23, í 7. umferð Olís-deildar karla í vikunni. Þetta var sjöundi sigur Hauka í jafnmörgum deildarleikjum og situr liðið á toppnum með fullt hús stiga. Framarar hafa hins vegar tapað sex leikjum í röð í öllum keppnum. Rætt var um leikinn í nýjasta uppgjörsþætti Handkastsins þar sem innkoma Arons Rafns Eðvarðssonar var meðal umræðuefna. Aron Rafn lék sinn fyrsta leik á tímabilinu og varði þrjú skot eftir að hann kom inn á. Það vakti jafnframt athygli að bæði lið notuðu þrjá markverði í leiknum. Því var velt upp hvort slíkt væri einsdæmi, í það minnsta hér á landi. „Þetta hlýtur að vera eitthvað einsdæmi,“ sagði Stymmi klippari þegar Sérfræðingurinn nefndi að sex markverðir hefðu komið við sögu. Grétar Ari Guðjónsson, Ari Dignus Maríuson og Aron Rafn Eðvarðsson stóðu í marki Hauka en Stefán Freyr Jónsson, Jóhann Ágústsson og Arnór Máni Daðason léku í marki Fram.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.