Hefur skorað fleiri Evrópumörk en Gidsel og Karabatic samanlagt
ANDRZEJ IWANCZUK / NurPhoto via AFP

Portúgalska stórskyttan Francisco Costa, leikmaður Sporting, heldur áfram að vekja gríðarlega athygli fyrir frammistöðu sína í evrópskum handbolta en hinn 21 árs gamli leikmaður hefur nú skorað fleiri mörk í Evrópukeppnum félagsliða en stórstjörnurnar Mathias Gidsel og Nikola Karabatic höfðu gert samanlagt á sama aldri.

Costa fór á kostum þegar Sporting vann sænska liðið Kristianstad, 42-40, í fimmtu umferð Meistaradeildar Evrópu í vikunni. Portúgalinn skoraði fjórtán mörk úr sextán skotum og var markahæsti leikmaður vallarins.

Samkvæmt samantekt Handball Planet hefur Costa nú skorað 486 mörk í Evrópukeppnum félagsliða. Til samanburðar höfðu Gidsel og Karabatic samanlagt skorað 245 mörk í Evrópukeppnum áður en þeir urðu 22 ára gamlir.

Tölfræðin er eftirtektarverð, ekki síst þegar litið er til þess að bæði Gidsel og Karabatic hafa verið meðal allra bestu handboltamanna heims. Þó verður að hafa í huga að fjöldi leikja og keppnisfyrirkomulag hefur verið mismunandi á ferli leikmannanna.

Costa hefur verið einn af lykilmönnum Sporting undanfarin ár og hefur ásamt bróður sínum, Martim Costa, myndað eitt öflugasta sóknarpar evrópsks félagsliðahandbolta.

Costa bræðurnir flytja sig um set næsta sumar og ganga í raðir þýska liðsins, Flensburg.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top