Þýska stórliðið Flensburg-Handewitt hefur fengið góðar fréttir fyrir stórleikinn gegn Gummersbach í þýsku úrvalsdeildinni í dag en danski landsliðsmaðurinn Niclas Kirkeløkke er orðinn leikfær á ný eftir heilahristing. Kirkeløkke hefur verið frá keppni að undanförnu vegna meiðslanna en hefur nú hafið fullar æfingar með liðinu og er klár í slaginn gegn Gummersbach. Hinn 32 ára gamli Kirkeløkke leikur í hægri skyttustöðunni og hefur verið mikilvægur hlekkur í liði Flensburg undanfarin ár. Leikur Gummersbach og Flensburg hefst klukkan 17:00 í dag en um er að ræða lokaleik dagsins í þýsku Bundesligunni. Gummersbach er í 10.sæti deildarinnar með átta stig að loknum átta leikjum en Flensburg er í 2.sæti deildarinnar með 17 stig, tveimur stigum á eftir toppliði Kiel en Flensburg á tvo leiki til góða á toppliðið. Leikurinn er því gríðarlega mikilvægur fyrir bæði lið. Með Gummersbach leika Elliði Snær Viðarsson, Garðar Ingi Sindrason og Teitur Örn Einarsson.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.