Fjórir leikir fóru fram í þýsku Bundesligunni í handbolta í dag. Gummersbach lagði Flensburg í spennuleik, Magdeburg vann öruggan útisigur á Rhein-Neckar Löwen og þá fögnuðu Füchse Berlin og Bergischer einnig sigri. Um var að ræða fyrsta heimasigur Arnórs Þórs og lærisveina hans í Bergischer á tímabilinu. Gummersbach, undir stjórn Guðjóns Vals Sigurðssonar, vann mikilvægan sigur á Flensburg, 31–30, og varð þar með fyrsta liðið til að leggja Flensburg að velli í deildinni á tímabilinu. Heimamenn leiddu 14–11 í hálfleik og héldu að lokum út þrátt fyrir áhlaup gestanna. Nikola Roganovic fór á kostum með tólf mörk fyrir Gummersbach og Alex Dujshebaev bætti við sex. Elliði Snær Viðarsson og Garðar Ingi Sindrason skoruðu tvö mörk hvor fyrir sigurliðið. Bertram Obling varði mark Gummersbach með 41% markvörslu. Hjá Flensburg voru Simon Pytlick og Emil Jakobsen markahæstir með sjö mörk hvor. Magdeburg vann átta marka útisigur á Rhein-Neckar Löwen, 31–23, eftir að hafa verið 16–12 yfir í hálfleik. Löwen jafnaði metin í 16–16 snemma í síðari hálfleik en gestirnir tóku aftur stjórnina og sigu fram úr þegar leið á hálfleikinn. Ómar Ingi Magnússon var markahæstur á vellinum með sjö mörk, þar af þrjú úr vítum. Gísli Þorgeir Kristjánsson skoraði sex mörk en Elvar Örn Jónsson komst ekki á blað. Haukur Þrastarson skoraði fjögur mörk fyrir Löwen. Jannik Kohlbacher var markahæstur heimamanna með sex mörk. Markverðirnir Matej Mandić hjá Magdeburg og David Späth hjá Löwen vörðu fimmtán skot hvor. Füchse Berlin vann Rúnar Sigtryggsson og lærisveina hans í Wetzlar 36–30 á heimavelli og komst aftur á sigurbraut eftir tvö deildartöp í röð. Berlínarliðið leiddi 18–14 í hálfleik og náði átta marka forskoti í síðari hálfleik. Mathias Gidsel var atkvæðamestur með tólf mörk en Leo Prantner og Tobias Gröndahl skoruðu fimm hvor. Fabian Wiede sneri aftur eftir árs fjarveru vegna meiðsla og skoraði sitt fyrsta deildarmark á tímabilinu. Bergischer vann sinn fyrsta heimasigur á tímabilinu þegar Hamburg kom í heimsókn, 26–25. Heimamenn voru 13–11 yfir í hálfleik og juku muninn í fimm mörk snemma í þeim síðari. Arnór Þór Gunnarsson er þjálfari Bergischer. Hamburg vann sig aftur inn í leikinn og komst yfir, 24–23, þegar fimm mínútur voru eftir. Sören Steinhaus reyndist hins vegar hetja heimamanna þegar hann skoraði sigurmarkið. Lukas Becher var markahæstur Bergischer með sjö mörk en Oliver Norlyk skoraði sex fyrir Hamburg.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.