Kristianstad vill fá Palicka
Frank Hoermann

Sænska félagið IFK Kristianstad hefur áhuga á að fá reynslumikla sænska markvörðinn Andreas Palicka til liðs við sig næsta sumar. Þetta kemur fram í frétt Kristianstadsbladet sem sænski handboltamiðillinn Handbollskanalen greinir frá.

Palicka, sem er fertugur, leikur nú með þýska stórliðinu Füchse Berlin en samningur hans við félagið rennur út næsta sumar. Hann gæti því verið á förum frá Berlín eftir yfirstandandi tímabil. Palicka lék á sínum tíma með Redbergslids í Gautaborg en hann er fæddur í Lundi í Svíþjóð.

Samkvæmt heimildum Kristianstadsbladet er Palicka einn þeirra markvarða sem forráðamenn Kristianstad eru að skoða fyrir næstu leiktíð.

Óvissa ríkir um framtíð Hayder Khafadji Lundbäck, markvarðar Kristianstad, en samningur hans rennur út eftir tímabilið. Hann er sagður hafa áhuga á að reyna fyrir sér erlendis á nýjan leik og því gæti Kristianstad þurft að styrkja markvarðastöðuna næsta sumar.

Þetta er ekki í fyrsta skipti sem Kristianstad reynir að fá Palicka til félagsins. Sænska félagið sýndi honum áhuga árið 2024 þegar hann yfirgaf franska stórliðið Paris Saint-Germain. Palicka ákvað hins vegar að ganga til liðs við norska félagið Kolstad.

Palicka hefur átt afar farsælan feril og leikið með nokkrum af stærstu félagsliðum Evrópu, meðal annars THW Kiel, Rhein-Neckar Löwen, Paris Saint-Germain og Kolstad.

Hann gekk til liðs við Füchse Berlin fyrir yfirstandandi tímabil eftir að hafa leikið með HSG Wetzlar á síðari hluta síðustu leiktíðar.

Palicka lagði landsliðsskóna á hilluna fyrr á þessu ári eftir langan og farsælan feril með sænska landsliðinu. Hann varð meðal annars Evrópumeistari með Svíum árið 2022.

Fjórir íslenskir handknattleiksmenn leika með Kristianstad, þeir Ólafur Guðmundsson, Einar Bragi Aðalsteinsson, Baldur Fritz Bjarnason og Andri Erlingsson. Þá er Gunnar Steinn Jónsson aðstoðarþjálfari liðsins.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top