Sænska handboltastjarnan Jamina Roberts hefur leikið sinn síðasta leik fyrir danska stórliðið Ikast en hún á von á sínu öðru barni í apríl á næsta ári. Roberts, sem er 36 ára gömul, ætlar þó ekki að leggja handboltaskóna á hilluna og er sögð á leið aftur til uppeldisfélags síns, Sävehof, næsta sumar. Ikast staðfesti í gær að Roberts og sambýlismaður hennar, Emil Berggren, ættu von á sínu öðru barni og að hún yrði því frá keppni næstu mánuðina. Roberts staðfesti í samtali við sænska Sportbladet að hún hefði leikið sinn síðasta leik fyrir Ikast og að atvinnumannaferli hennar erlendis væri þar með lokið. „Mér líður vel með það, rétt eins og ákvörðunina um að hætta með landsliðinu í vor. Ég tók þessa ákvörðun sjálf,“ sagði Roberts við Sportbladet. Roberts gekk til liðs við Ikast í janúar 2025 eftir að norska stórliðið Vipers Kristiansand varð gjaldþrota. Hún hefur áður leikið með Sävehof, Holstebro, Érd, Randers og Vipers en varð meðal annars Evrópumeistari með Vipers árið 2023. Samkvæmt upplýsingum Sportbladet hefur Roberts ákveðið að snúa aftur til Sävehof næsta sumar og er sögð hafa gert tveggja ára samning við félagið. Roberts vildi þó ekki staðfesta þær upplýsingar þegar hún var spurð út í framtíðina. Roberts og fjölskylda hennar eiga hús í Partille í Svíþjóð og höfðu þegar ákveðið að flytja heim þegar samningur hennar við Ikast rynni út. Þrátt fyrir að vera 36 ára gömul og eiga von á sínu öðru barni hefur Roberts engan áhuga á að hætta í handbolta. „Mér finnst ég enn eiga meira inni. Ég er vön því að æfa handbolta og ef ég get haldið því áfram í einhvern tíma áður en ég fer að leita mér að annarri vinnu væri það frábært,“ sagði Roberts. Elín Klara Þorkelsdóttir leikur í dag með Savehof en gengur í raðir Ikast næsta sumar.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.