Elín Klara fór á kostum – Jafntefli hjá Arnóri
Guðmundur Svansson

Elín Klara Þorkelsdóttir átti stórleik þegar Sävehof vann öruggan útisigur á Kristianstad, 32-18, í sænsku úrvalsdeild kvenna í gær. Arnór Viðarsson og félagar í Karlskrona urðu hins vegar að sætta sig við jafntefli gegn Hammarby eftir dramatískar lokamínútur.

Elín Klara var markahæst á vellinum með tólf mörk en ellefu þeirra komu í fyrri hálfleik. Hún skoraði því ellefu af nítján mörkum Sävehof fyrir hlé og jafnmörg og allt lið Kristianstad, en hálfleikstölur voru 19-11.

Sävehof náði snemma frumkvæðinu og komst í 5-2 áður en heimakonur jöfnuðu metin. Þá lét Elín Klara til sín taka með tveimur mörkum í röð, öðru úr vítakasti og hinu af eigin vallarhelmingi.

Gestirnir tóku í kjölfarið öll völd á vellinum og gáfu forskotið aldrei eftir. Sävehof hélt heimakonum í aðeins sjö mörkum í síðari hálfleik og vann að lokum fjórtán marka sigur. Þetta var annar sigur liðsins í vikunni eftir sigur á Hallby á miðvikudag.

Í sænsku úrvalsdeild karla gerðu Karlskrona og Hammarby jafntefli, 28-28, á heimavelli Karlskrona. Arnór og félagar voru fjórum mörkum yfir í hálfleik, 15-11, og virtust lengi vel á góðri leið með að landa báðum stigunum. Arnór Viðarsson skoraði fimm mörk fyrir Karlskrona.

Karlskrona var enn þremur mörkum yfir þegar fjórar mínútur voru eftir, 28-25, en tókst ekki að skora það sem eftir lifði leiks. Hammarby gekk á lagið og Henrik Momats Norén jafnaði metin á lokasekúndunum. Svekkjandi niðurstaða fyrir heimamenn sem höfðu sigurinn í hendi sér.

Í dönsku 1. deild kvenna mátti Rødovre sætta sig við ellefu marka tap á útivelli gegn Ejstrup/Hærvejen, 36-25. Inga Dís Jóhannsdóttir var í leikmannahópi Rødovre en komst ekki á blað.

Heimakonur leiddu með fjórum mörkum í hálfleik, 17-13, og juku forskotið enn frekar eftir hlé. Rødovre náði því ekki að fylgja eftir baráttunni í fyrri hálfleik og hélt stigalaust heim.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top