Díana Dögg Magnúsdóttir og Elín Rósa Magnúsdóttir skoruðu tvö mörk hvor þegar Blomberg-Lippe vann öruggan útisigur á Neckarsulm, 33-24, í þýsku úrvalsdeild kvenna í gær. Alfa Brá Oddsdóttir Hagalín og félagar í Thüringer fögnuðu einnig sigri og liðin eru áfram hlið við hlið á toppi deildarinnar. Blomberg-Lippe hafði frumkvæðið frá upphafi í Neckarsulm og skoraði fyrstu fjögur mörk leiksins. Heimakonur náðu að minnka muninn í eitt mark í fyrri hálfleik en Blomberg-Lippe náði aftur tökum á leiknum og leiddi 14-10 í hálfleik. Gestirnir gerðu síðan út um leikinn með öflugum kafla snemma í síðari hálfleik. Munurinn jókst í sjö mörk, 19-12, og Blomberg-Lippe sigldi að lokum öruggum níu marka sigri í höfn. Nieke Kühne var markahæst í sigurliðinu með sjö mörk. Thüringer þurfti að hafa meira fyrir stigunum tveimur þegar liðið tók á móti Halle-Neustadt. Lokatölur urðu 32-30 eftir að jafnt hafði verið í hálfleik, 14-14. Alfa Brá var ekki meðal markaskorara Thüringer. Levke Kretschmann fór fyrir sóknarleik heimakvenna með níu mörk. Thüringer náði þriggja marka forskoti, 23-20, þegar stundarfjórðungur var eftir og hélt gestunum frá sér út leikinn. Blomberg-Lippe og Thüringer eru bæði ósigruð eftir sjö umferðir með sex sigra og eitt jafntefli, eða þrettán stig. Blomberg-Lippe situr á toppnum á betri markatölu.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.