Hannover semur við lykilmann til 2030
AXEL HEIMKEN /AFP

Þýska úrvalsdeildarfélagið Hannover-Burgdorf hefur framlengt samning sinn við leikstjórnandann Leif Tissier til sumarsins 2030. Félagið tilkynnti tíðindin rétt fyrir leik liðsins gegn Bergischer HC um helgina þar sem Tissier sneri aftur á völlinn eftir meiðsli.

Tissier er 26 ára gamall og gekk til liðs við Hannover frá Hamburg sumarið 2025. Hann hefur á skömmum tíma fest sig í sessi sem einn mikilvægasti leikmaður félagsins. Fjölmörg félög höfðu sýnt Tissier áhuga en hann ákvað að framlengja dvöl sína hjá Hannover til næstu fjögurra ára.

Tilkynnt var um samningsframlenginguna á risaskjá í ZAG Arena aðeins þremur mínútum fyrir upphaf leiks Hannover og Bergischer HC á laugardagskvöldið. Áhorfendur fögnuðu tíðindunum vel.

Tissier hafði verið frá keppni eftir að hafa handarbrotnað í leik gegn Bietigheim fyrr á tímabilinu. Hann sneri hins vegar aftur á völlinn gegn Bergischer HC og átti þátt í því að Hannover tryggði sér sex marka sigur, 27-21, eftir að hafa verið undir í hálfleik, 13-14.

Arnór Þór Gunnarsson er sem kunnugt er þjálfari Bergischer HC en liðið hefur átt erfitt uppdráttar í þýsku úrvalsdeildinni á tímabilinu.

Tissier hefur leikið 38 mótsleiki fyrir Hannover og skorað 159 mörk síðan hann gekk til liðs við félagið.

Tissier segist ánægður með að hafa tryggt framtíð sína hjá félaginu.

„Konunni minni og mér hefur liðið vel í Hannover frá fyrstu sekúndu. Það hafði mikil áhrif á ákvörðun okkar,“ sagði Tissier við tilkynningu samningsins.

Sven-Sören Christophersen, íþróttastjóri Hannover, segir framlenginguna mikilvæga fyrir framtíð félagsins.

Hann hrósaði Tissier fyrir leikskilning, kraft og hæfileikann til að taka ábyrgð á mikilvægum augnablikum.

Juan Carlos Pastor, þjálfari Hannover, tók í sama streng og sagði það hafa verið eitt helsta markmið félagsins að halda leikstjórnandanum.

Tissier er sjöundi leikmaður Hannover sem er samningsbundinn félaginu að minnsta kosti til ársins 2029.

Á dögunum framlengdi norski hornamaðurinn August Pedersen einnig samning sinn við Hannover til ársins 2030 og ljóst að félagið leggur mikla áherslu á að halda lykilmönnum sínum til lengri tíma.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top