Lilja með fullkomna skotnýtingu – Lovísa áfram á sigurbraut

Landsliðskonurnar, Lilja Ágústsdóttir og Lovísa Thompson voru í eldlínunni með félagsliðum sínum í Evrópu í gær.

Lilja og liðsfélagar hennar í Zwickau gerðu jafntefli gegn Leipzig í þýsku úrvalsdeildinni á meðan Lovísa og Benfica unnu sautján marka stórsigur í portúgölsku úrvalsdeildinni.

Zwickau gerði 27-27 jafntefli gegn HC Leipzig á útivelli í þýsku úrvalsdeild kvenna eftir að hafa verið fimm mörkum yfir í hálfleik, 16-11. Lilja Ágústsdóttir skoraði tvö mörk úr tveimur skotum í leiknum og var því með 100% skotnýtingu.

Eftir jafnan upphafskafla náði Zwickau undirtökunum og var með fimm marka forskot þegar flautað var til hálfleiks. Heimakonur í Leipzig neituðu hins vegar að gefast upp og unnu sig jafnt og þétt inn í leikinn í síðari hálfleik.

Leipzig jafnaði metin í 23-23 þegar tíu mínútur voru eftir og komst síðan yfir, 27-26, þegar rúmar tvær mínútur voru til leiksloka. Lena Navne bjargaði hins vegar stigi fyrir Zwickau þegar hún jafnaði metin í 27-27 á lokamínútunni.

Jafnteflið voru mikil vonbrigði fyrir Zwickau eftir sterkan fyrri hálfleik en Leipzig fagnaði sínu fyrsta stigi á tímabilinu.

Lovísa Thompson og liðsfélagar hennar í Benfica héldu áfram sigurgöngu sinni í portúgölsku úrvalsdeildinni þegar liðið vann öruggan sautján marka heimasigur á AA São Pedro do Sul, 34-17. Lovísa var í byrjunarliði Benfica og skoraði eitt mark í leiknum.

Gestirnir byrjuðu ágætlega en Benfica tók fljótlega stjórnina og leiddi með sjö mörkum í hálfleik, 16-9. Í síðari hálfleik juku heimakonur forskotið jafnt og þétt og þegar tíu mínútur voru eftir var staðan orðin 30-15.

Benfica hefur nú unnið alla átta leiki sína í portúgölsku úrvalsdeildinni á tímabilinu og er enn með fullt hús stiga.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top