Haukar héldu sigurgöngunni áfram á Ásvöllum
Sævar Jónasson

Haukar héldu sigurgöngu sinni áfram í Olís-deild kvenna í kvöld þegar liðið lagði Gróttu að velli, 27-22, á Ásvöllum. Haukar hafa þar með unnið alla átta leiki sína í deildinni og eru enn með fullt hús stiga á toppnum.

Gróttukonur byrjuðu leikinn betur og komust í 3-1 og síðar 7-4. Haukar náðu hins vegar að jafna metin í 7-7 og komust í kjölfarið yfir í 8-7.

Liðin voru jöfn í 9-9 þegar tæpar 18 mínútur voru liðnar en þá náðu Haukar frumkvæðinu. Heimakonur komust í 13-9 áður en Grótta minnkaði muninn í 13-10, sem voru hálfleikstölur.

Haukar byrjuðu síðari hálfleikinn af krafti og komust í 16-12. Grótta hélt þó áfram að berjast og minnkaði muninn í 17-15 þegar rúmar 38 mínútur voru liðnar.

Þá kom góður kafli hjá Haukum sem skoruðu fjögur mörk í röð og breyttu stöðunni í 21-15. Grótta minnkaði muninn í 25-21 þegar rúmar fimm mínútur voru eftir en Haukar héldu forskotinu og tryggðu sér að lokum fimm marka sigur, 27-22.

Undir lok leiks varð Sonja Lind Sigsteinsdóttir, leikmaður Hauka, fyrir samstuði við leikmann Gróttu og fékk skurð á höfuðið.

Jóhanna Margrét Sigurðardóttir var markahæst hjá Haukum með sex mörk. Embla Steindórsdóttir skoraði fimm og Berta Rut Harðardóttir fjögur. Sara Sif Helgadóttir varði tólf skot í marki Hauka og Hrafnhildur Anna Þorleifsdóttir eitt.

Hjá Gróttu var Katrín S. Scheving Thorsteinsson markahæst með sjö mörk. Elísabet Ása Einarsdóttir skoraði fjögur og Arnbjörg Bertha Kristinsdóttir þrjú. Andrea Gunnlaugsdóttir varði þrjú skot og Anna Karólína Ingadóttir tvö.

Haukar snúa sér nú að Evrópuverkefni um helgina þegar liðið mætir Levalea frá Svartfjallalandi. Báðir leikir liðanna fara fram á Ásvöllum.

Sage By Saga Sif styður kvennaumfjöllun Handkastsins - Kóðinn: handkastid veitir 15% afslátt í vefverslun Sage By Saga Sif.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top