Sigurvin Jarl kominn í Víði
ÍR handbolti)

Hægri hornamaðurinn Sigurvin Jarl Ármannsson er genginn í raðir Víðis úr Garði.

Sigurvin Jarl sem er 30 ára fékk félagaskipti í félagið fyrir rúmum 2 vikum síðan. Hann hafði ekkert leikið síðan tímabilið 2024/2025 með ÍR.

Sigurvin lék sinn fyrsta leik á móti Val 2 í þarsíðustu umferð og skoraði 2 mörk. Einnig kom hann við sögu í í síðasta leik Víðis á móti Hvíta Riddaranum en Víðismenn náðu þar í sinn fyrsta sigur á tímabilinu í 32-39 sigri í Mosfellsbæ.

Það er ljóst að Sigurvin Jarl mun hjálpa Víðis mönnum helling í baráttunni framundan í Grill 66 deildinni.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top