Sebastian Alexandersson hefur haft nóg að gera á milli Hafnarfjarðar og Mosfellsbæjar í vetur en liðin þrjú sem hann kemur að hafa öll unnið hvern einasta deildarleik sinn á tímabilinu. Sebastian var ráðinn afreksþjálfari Hauka í sumar og sinnir þar einstaklingsþjálfun ungra og upprennandi leikmanna. Verkefni hans ná bæði til yngri leikmanna meistaraflokka og leikmanna yngri flokka félagsins, sem hann aðstoðar við að þróast sem handknattleiksmenn. Nokkrum dögum eftir að ráðning hans hjá Haukum var kynnt tók Sebastian einnig við þjálfun kvennaliðs Aftureldingar í Grill66-deildinni. Í nýjasta þætti Handkastsins vakti Stymmi klippari athygli á óaðfinnanlegum árangri liðanna þriggja. Karlalið Hauka hefur unnið fyrstu níu deildarleiki sína en kvennalið félagsins og kvennalið Aftureldingar hafa hvort um sig unnið fyrstu sjö leikina. Samanlagt eru þetta því 23 sigrar í 23 leikjum. „Sebastian Alexandersson hefur ekki tapað leik hjá báðum liðum sínum í vetur. Hann er 7-0-0 með Aftureldingu í Grill66-deild kvenna og síðan eru bæði karla- og kvennalið Hauka með fullt hús stiga,“ sagði Stymmi klippari. Stymmi lét þó ekki þar við sitja og skaut að léttum brandara um ferðir Sebastians á milli félaganna: „Hann er ekki með nema 67.000 krónur í kílómetragjald á mánuði.“

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.