Guðjón Guðmundsson sér aðeins eitt lið fyrir sér sem gæti lagt Hauka að velli í Olís-deild karla í vetur. Þetta kom fram í nýjasta þætti Handkastsins þar sem rætt var um sterka stöðu Hafnarfjarðarliðsins. Haukar hafa unnið fyrstu níu deildarleiki sína á tímabilinu og Guðjón fór fögrum orðum um lið félagsins. Haukar unnu Stjörnuna einnig í 16-liða úrslitum Powerade-bikarsins og eru komnir áfram í næstu umferð Evrópubikarsins eftir tvo sannfærandi sigra á Esch frá Lúxemborg. „Haukar eru með vel samansett lið bæði karla- og kvennamegin. Mér finnst karlaliðið frábært.“ Guðjón telur breiddina mikla hjá Haukum en benti þó á hversu stórt hlutverk Freyr leikur í liðinu báðum megin vallarins. „Það er hvergi veikan hlekk að finna á þessu Haukaliði. Breiddin er gríðarlega mikil og Freyr auðvitað ber þetta lið uppi, ekki bara sóknarlega heldur líka varnarlega og það er kannski pínulítið hættulegt þegar lengra líður á tímabilið.“ Hann á ekki von á mörgum töpum hjá Haukum í vetur. „Ég get ekki séð að Haukar séu að fara að tapa mörgum leikjum í deildinni. Ég held að eina liðið sem gæti hugsanlega unnið Hauka í vetur sé Valur. Ég sé engin önnur lið vinna Hauka,“ sagði Guðjón. Stymmi klippari vildi þó bæta FH við umræðuna enda lúti nágrannaslagir Hafnarfjarðarliðanna gjarnan öðrum lögmálum. „Ég myndi mögulega henda FH inn í þetta af því að þeir leikir, Haukar–FH, eiga sitt eigið líf. Nágrannaslagur og spennustigið. Þetta er eins og þegar Manchester United og Liverpool mætast. Þrátt fyrir að Manchester United sé í 17. sæti þá eru þetta allt stórleikir, sagan og síðan leita þessir leikir í eitthvað rugl.“ Stymmi tók hins vegar undir mat Guðjóns á helsta keppinauti Hauka. „En ég er sammála því að Valur er langnæstbesta lið deildarinnar.“

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.