Uppselt í Höllina á morgun
Johan NILSSON /AFP

Uppselt er á leik Íslands og Úkraínu í undankeppni EM 2028 sem fram fer í Laugardalshöll annað kvöld. Leikurinn hefst klukkan 19:30.

Þetta er fyrsti leikur íslenska karlalandsliðsins í undankeppninni. Í tilkynningu frá HSÍ er öllum sem keyptu miða þakkað fyrir stuðninginn og gestir hvattir til að mæta snemma og láta vel í sér heyra.

Húsið opnar klukkan 18:00 og Hreimur sér um að hita upp fyrir leikinn með tónlist á gólfinu. Allir miðakaupendur eiga möguleika á að vinna áritaða landsliðstreyju en dregið verður í hálfleik og vinningshafinn kynntur á risaskjánum.

VIP-svæðið opnar einnig klukkan 18:00 með mat og drykkjum. Þar fara Arnór Atlason, aðstoðarþjálfari landsliðsins, og leikmennirnir Viggó Kristjánsson, Ýmir Örn Gíslason og Einar Þorsteinn Ólafsson yfir leikinn í pallborði.

HSÍ vekur jafnframt athygli á neyðarsöfnun UNICEF á Íslandi fyrir börn í Úkraínu. Fjáröflunarstarfsfólk samtakanna verður í Höllinni og gestir eru hvattir til að taka vel á móti því.

Bílastæði verða við nýju höllina og á Þróttaraplani. Leikurinn verður sýndur beint á RÚV.

Íslenska liðið heldur síðan til Tallinn þar sem það mætir Eistlandi sunnudaginn 8. nóvember klukkan 16:00. Sá leikur verður einnig í beinni útsendingu á RÚV.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top