Teitur Örn Einarsson leikmaður Gummersbach hefur verið kallaður inn í íslenska karla landsliðið fyrir komandi leiki í undankeppni EM 2028. Hann kemur í stað Einars Þorsteins Ólafssonar, sem meiddist í síðasta leik sínum fyrir landsleikjahléið með Hamburg í þýsku Bundesligunni. Ísland mætir Úkraínu í Laugardalshöll annað kvöld klukkan 19:30. Uppselt er á leikinn sem er fyrsti leikur íslenska liðsins í undankeppninni. Liðið heldur síðan til Tallinn þar sem það mætir Eistlandi sunnudaginn 8. nóvember klukkan 16:00. Báðir leikirnir verða sýndir beint á RÚV.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.