Hópurinn gegn Úkraínu – Jón Bjarni í hóp
Sævar Jónasson

Snorri Steinn Guðjónsson, landsliðsþjálfari Íslands í handbolta, hefur valið þá 16 leikmenn sem mæta Úkraínu í Laugardalshöll í kvöld klukkan 19:30 í fyrsta leik Íslands í undankeppni EM 2028.

Teitur Örn Einarsson og Jón Þórarinn Þorsteinsson eru ekki í leikmannahópnum. Teitur Örn var kallaður inn í landsliðið fyrr í vikunni í stað Einars Þorsteins Ólafssonar en er ekki meðal þeirra 16 leikmanna sem Snorri Steinn hefur valið fyrir leikinn.

Einar Þorsteinn er frá vegna meiðsla, rétt eins og Ýmir Örn Gíslason. Þá tekur Viggó Kristjánsson út leikbann.

Jón Bjarni Ólafsson, leikmaður FH, er hins vegar í hópnum og fær þar með tækifæri til að bæta við þá tvo A-landsleiki sem hann hefur leikið til þessa.

Uppselt er á leikinn í Laugardalshöll í kvöld og verður hann sýndur í beinni útsendingu á RÚV 2.

Hópur Íslands gegn Úkraínu:

Markmenn

Björgvin Páll Gústavsson – Valur (298/26)
Viktor Gísli Hallgrímsson – Barcelona (87/2)

Aðrir leikmenn

Arnar Freyr Arnarsson – Flensburg (120/129)
Bjarki Már Elísson – PSG (139/449)
Elliði Snær Viðarsson – Gummersbach (75/180)
Elvar Örn Jónsson – Magdeburg (98/222)
Gísli Þorgeir Kristjánsson – Magdeburg (86/211)
Haukur Þrastarson – Rhein-Neckar Löwen (60/85)
Janus Daði Smárason – Barcelona (109/206)
Jón Bjarni Ólafsson – FH (2/3)
Kristján Örn Kristjánsson – Skanderborg AGF (39/81)
Orri Freyr Þorkelsson – Sporting (45/158)
Óðinn Þór Ríkharðsson – Kadetten Schaffhausen (71/217)
Ómar Ingi Magnússon – Magdeburg (103/396)
Reynir Þór Stefánsson – MT Melsungen (5/8)
Sigvaldi Björn Guðjónsson – Hannover-Burgdorf (90/233)

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top