Afturelding heldur áfram sigurgöngu sinni í Grill 66 deild kvenna
J.L.Long

FH og Afturelding mættust í kvöld í Grill 66 deild kvenna en leikið var í Kaplakrika.

Aftureldingar stelpur byrjuðu mun betur og komust m.a í 2-7 og virtust FH stelpur hálf slegnar við þessa byrjun. Áfram héldu þær á góðu skriði og komust því næst í 5-10.

Hálfleikstölur voru 11-15 og útlitið gott fyrir gestina úr Mosfellsbænum.

Eftir rúmt korter í seinni hálfleik voru heimastúlkur í FH búnar að jafna metin í 18-18. Restin af leiknum var mjög jöfn og spennandi en UMFA alltaf einu skrefi á undan. Sylvía Björt Blöndal minnkaði muninn í 24-25 þegar lítið var eftir en nær komst FH ekki og Afturelding sigraði leikinn. Lokatölur 24-25.

Afturelding er því með ansi vænlega stöðu á toppi deildarinnar og líklega fátt sem stendur í vegi þeirra að þær vinni ekki þessa deild og komist upp í Olís deildina þó það sé bara 13. nóvember.

Hjá FH var Sylvía Björt Blöndal með 10 mörk. Sonja Szsöke varði 12 skot.

Hjá UMFA var Katrín Helga Davíðsdóttir markahæst með 7 mörk. Ingibjörg Gróa varði 10 skot.

Sage By Saga Sif styður kvennaumfjöllun Handkastsins - Kóðinn: handkastid veitir 15% afslátt í vefverslun Sage By Saga Sif.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top