Víkingur og Stjarnan skildu jöfn, 27-27, í Olís-deild karla í kvöld eftir spennandi lokamínútur. Víkingar leiddu 15-14 í hálfleik en Stjarnan tryggði sér annað stigið með jöfnunarmarki þegar 20 sekúndur voru eftir. Víkingar byrjuðu betur og komust í 5-3 eftir rúmlega níu mínútna leik. Stjarnan svaraði með fjórum mörkum í röð og komst í 7-5, en heimamenn náðu aftur yfirhöndinni og leiddu 15-14 í hálfleik. Víkingar komust í 18-16 í upphafi síðari hálfleiks en Stjarnan jafnaði í 18-18. Gestirnir náðu síðan þriggja marka forskoti, 21-18, en Víkingar unnu sig aftur inn í leikinn og jöfnuðu í 21-21. Stjarnan komst aftur tveimur mörkum yfir, 24-22, en Víkingar jöfnuðu í 26-26 þegar tvær mínútur voru eftir. Ásgeir Snær Vignisson kom Víkingum í 27-26 þegar 47 sekúndur voru eftir en Matthías Dagur Þorsteinsson jafnaði í 27-27 þegar 20 sekúndur voru til leiksloka. Jón Karl Einarsson var markahæstur Víkinga með sjö mörk og Þorgeir Bjarki Davíðsson skoraði fimm. Ísak Öli Eggertsson og Sigurður Páll Matthíasson skoruðu fjögur mörk hvor. Hjá Stjörnunni var Gauti Gunnarsson markahæstur með átta mörk og Bjarki Jóhannsson skoraði sex. Sigurður Dan Óskarsson varði 13 skot fyrir Stjörnuna en hjá Víkingi varði Rökkvi Pacheco Steinunnarson sex skot og Daði Bergmann Gunnarsson fimm.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.