Aðeins fjórar konur þjálfa landslið á EM
Thomas Traasdahl / Ritzau Scanpix / AFP

Aðeins fjórar konur verða í hlutverki aðalþjálfara á Evrópumóti kvenna sem hefst í desember. Alls taka 24 landslið þátt í mótinu og verða 25 aðalþjálfarar á hliðarlínunni þar sem Tékkland er með tvo þjálfara.

Þetta kemur fram í samantekt Handknattleikssambands Evrópu (EHF). Af 25 aðalþjálfurum mótsins eru 21 karl og fjórar konur. Þá eru níu landslið undir stjórn erlendra þjálfara.

Ein kvennanna fjögurra er Suzana Lazović, landsliðsþjálfari Svartfjallalands, sem mætir Íslandi í riðlakeppninni. Lazović tók við landsliði Svartfjallalands í ágúst 2024 eftir að Bojana Popović lét af störfum í kjölfar Ólympíuleikanna í París.

Hún hafði þá takmarkaða reynslu sem aðalþjálfari á meistaraflokksstigi en hafði áður þjálfað yngri flokka í Svartfjallalandi og Kína. Hún hafði jafnframt nýlega tekið við ungverska félaginu Alba Fehérvár.

Þrátt fyrir litla reynslu sem þjálfari hafði Lazović átt afar farsælan leikmannaferil. Hún varð Evrópumeistari með Svartfjallalandi árið 2012 og vann einnig silfurverðlaun á Ólympíuleikunum í London sama ár. Þá varð hún Evrópumeistari félagsliða með Budućnost. Lazović lagði handboltaskóna á hilluna aðeins 25 ára gömul vegna meiðsla.

Hún er jafnframt eini aðalþjálfarinn á komandi Evrópumóti sem hefur sjálfur orðið Evrópumeistari sem leikmaður. Undir hennar stjórn hafnaði Svartfjallaland í áttunda sæti á Evrópumótinu 2024 og heimsmeistaramótinu 2025.

Helle Thomsen, landsliðsþjálfari Danmerkur, er einnig ein kvennanna fjögurra. Helle Thomsen tók við danska landsliðinu í júlí 2025 og varð þá fyrsta konan í sextíu ár til að stýra danska kvennalandsliðinu.

Hún tók við af Jesper Jensen og hefur áður stýrt landsliðum Svíþjóðar og Hollands með góðum árangri. Danir unnu EHF EURO Cup undir hennar stjórn í september síðastliðnum eftir sigur gegn Noregi í úrslitaleiknum.

Íslenska kvennalandsliðið leikur í A-riðli Evrópumótsins ásamt Svartfjallalandi, Ungverjalandi og Slóveníu.

Arnar Pétursson stýrir íslenska landsliðinu en auk Lazović verður Vladimir Golovin á hliðarlínunni hjá Ungverjalandi og Dragan Adžić hjá Slóveníu. Athygli vekur að Adžić var þjálfari Budućnost þegar Lazović lék með félaginu á sínum tíma.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top