Auður með 13 mörk í sigri HK á Víking

Víkingur og HK 2 mættust í dag í Grill 66 deild kvenna en leikið var í í Safamýri.

HK stelpur byrjuðu leikinn ögn betur en Víkings stelpur voru ekki að lengi að snúa því við og komust þær fljótt yfir.

HK stelpur náðu svo að komast aftur yfir í stöðunni 7-8 en þá hrökk allt í baklás hjá þeim og Víkingur átti frábæran kafla undir lok fyrri hálfleiks. Fóru þær inn til búningsherbergja í hálfleik með 4 marka forskot.

13-9 voru hálfleikstölur fyrir Víking.

Fyrstu 10 mínúturnar í seinni hálfleik voru Víkingar áfram mun betri aðilinn en þá snerist leikurinn og HK náði að jafna í 20-20. Restin af leiknum var jafn og spennandi. Liðin skiptust á að jafna leikinn og komast yfir. Síðustu 5-6 mínúturnar voru hins vegar HK stelpur klókari og sterkari aðilinn og uppskáru þær að lokum eins marks sigur.

28-29 urðu lokatölur fyrir HK 2.

Hjá HK var Auður Guðmundsdóttir frábær og setti 13 mörk. Freydís Ragna Kristjánsdóttir varði 8 skot.

Hjá Víking voru Birna Dögg Egilsdóttir og Guðrún Maryam Rayadh markahæstar með 7 mörk. Bernódía Sif og Þórdís Idda vörðu samtals 12 skot.

Sage By Saga Sif styður kvennaumfjöllun Handkastsins - Kóðinn: handkastid veitir 15% afslátt í vefverslun Sage By Saga Sif.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top