Kærkominn sigur hjá Fjölnis mönnum
Toggi Pop

Valur 2 og Fjölnir mættust í kvöld í Grill 66 deild karla en leikið var á Hlíðarenda.

Mikið jafnræði var með liðunum fyrstu 10 mínútur leiksins en þá tóku Fjölnismenn yfirhöndina og voru alltaf einu skrefi á undan það sem eftir lifði hálfleiks. Voru þeir að leika einkum vel og héldu Vals mönnum í skefjum.

Í hálfleik var staðan 14-17 fyrir Fjölni.

Fjölnis menn byrjuðu mjög sterkt í seinni hálfleik og komust fljótlega 6 mörkum yfir og útlitið mjög gott fyrir þeim. Þegar 10 mínútur voru eftir voru þeir ennþá 6 mörkum yfir og ekkert sem benti til þess að Valsmenn væru að koma til baka. En þá tóku Valsarar frábæra rispu og minnkuðu muninn í 1 mark þegar 1 mínúta var eftir. Nær komust þeir ekki og Fjölnir og sigruðu leikinn að lokum.

Lokatölur 33-35 fyrir Fjölni. Mikilvægur sigur fyrir þá en gengi þeirra hefur verið skrykkjótt að undanförnu.

Hjá Fjölni var Akureyringurinn Heiðmar Örn Björgvinsson markahæstur með 11 mörk. Garpur og Hilmar vörðu samtals 5 skot.

Hjá Val var Logi Finnsson markahæstur með 8 mörk. Anton Máni og Þórhallur vörðu samtals 4 skot.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top